Skip to main content
19. mars 2024

Ný bók um morðin á Sjöundá og Illugastöðum

Ný bók um morðin á Sjöundá og Illugastöðum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komin bókin Þessi frægu glæpamál: Morðin á Sjöundá og Illugastöðum. Það eru Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ og Jón Torfason, fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands sem rita ítarlegan inngang og tóku saman heimildir sem eru gefnar út í heild sinni í fyrsta sinn í þessari bók. Útgefendur eru Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og Háskólaútgáfan. 

Í bókinni birtast yfirheyrslur og héraðsdómar í tveimur frægustu morðmálum Íslandssögunnar, sem áttu sér stað á Sjöundá á Rauðasandi í Barðastrandarsýslu árið 1802 og Illugastöðum á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu árið 1828. Þrátt fyrir mikla og tíða umfjöllun eru málin ekki vel þekkt af þeirri einföldu ástæðu að frumheimildir hafa ekki verið aðgengilegar á prenti. Umræða hefur þar af leiðandi ýmist tekið mið af skáldsögum eða sagnaþáttum sem fremur byggja á sögusögnum en frumgögnum, þótt vitaskuld séu á því undantekningar. Morðin á Jóni Þorgrímssyni, Guðrúnu Egilsdóttur, Natan Ketilssyni og Pétri Jónssyni og aftökur Bjarna Bjarnasonar, Friðriks Sigurðssonar og Agnesar Magnúsdóttur, að ógleymdum skyndilegum dauðdaga Steinunnar Sveinsdóttur, vöktu athygli á sínum tíma og áhugi á þessum atburðum hefur viðhaldist til þessa dags. Morðin og aftökurnar hafa eðlilega blandast saman í huga almennings, sagnfræðinga og skálda en í þessari bók er skilið á milli með þeim hætti að birt eru gögn um rannsókn málanna tveggja í héraði eftir skjölum í Þjóðskjalasafni Íslands, en ekki um aftökurnar. Mestum tíðindum sætir að sú gerð dómsins í Sjöundámáli sem einkum hefur verið stuðst við í umfjöllun reynist vera fölsun.

Í inngangi er atburðarás lýst í meginatriðum og meðferð málanna reifuð, en jafnframt vikið að síðari umfjöllun, skáldlegri sem fræðilegri; síðast en ekki síst verður varðveittum gögnum lýst nokkuð rækilega. Lesendur geta nú metið málsatvik og greint á milli þess sem satt er og logið í öðrum ritum eða öllu heldur á milli þess, sem rannsókn leiddi í ljós á sínum tíma, og þess sem aðrir hafa aukið við, hvort sem það nú er byggt á heiðvirðum sögusögnum eða uppspuna.

Már Jónsson prófessor hefur m.a. gefið út galdradóma frá 17. öld og fjölmargt annað frá fyrri öldum. Jón Torfason hefur áður gefið út Húnvetninga sögu Gísla Konráðssonar og fleira, einkum um húnvetnskt efni.

Már Jónsson og Jón Torfason.